Eins og venjan er á ári hverju hefur Áramótaskaup Ríkisútvarpsins 2021 hlotið lof og last áhorfenda og snörp skoðanaskipti hafa farið fram um fyndni þess, þótt viðtökurnar í ár hafi verið í jákvæðari kantinum. Einn Íslendingur er þó ekki par ánægður með skaupið og telur persónulega vegið að sér, en sá er Brynjar Níelsson, fyrrum Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
„Hvað þarf maður eiginlega að gera til að komast í þetta Skaup?“ spyr Brynjar vini sína í færslu á Facebook-síðu sinni. „Ég hef hagað mér eins og fífl árum saman í þeim eina tilgangi að vekja athygli höfunda Skaupsins. Þetta er diss aldarinnar.“
Svo virðist sem Brynjar verði að leggja harðar af sér við þá iðkan til þess að höfundar næsta skaups taki eftir honum, en hann var ekki meðal þeirra mektarbokka þjóðfélagsins sem var hent grín að í skaupi ársins.
„Þarf maður að gera eins og Inga Sæland og halda sömu ræðuna samfleytt í fjögur ár?“ spyr Brynjar, en Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var í aðalhlutverki í nokkrum atriðum skaupsins í listilegri túlkun Ólafíu Hrannar Jónsdóttur.
Inga var hæstánægð með skaupið og ef eitthvað er hana að marka er það ekki hver sem er sem fær að vera persóna í því. „Því það fær enginn að vera í skaupinu nema hann sé umdeildur og eftir honum sé tekið,“ sagði hún í viðtali við Vísi í gær.