Brynjar Níels­son segir „frekju- og for­réttinda­liðið sé á góðri leið með að taka yfir Ís­land“

Brynjar Níels­son, fyrr­verandi þing­maður og nú­verandi að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, vandar fólki úr lista- og menningar­heiminum, sjálf­stæðum at­vinnu­rek­endum og í­þrótta­heiminum ekki kveðjurnar í nýrri færslu á Face­book síðu sinni.

„Mér sýnist að frekju-og for­réttinda­liðið sé á góðri leið með að taka yfir Ís­land. For­réttinda­liðið úr lista-og menningarelítunni, sem fær fram­færslu frá skatt­greið­endum til að sinna hugðar­efnum og á­huga­málum sínum, finnst jafn sjálf­sagt að fólk hvaða­næva úr heiminum fái heimili og fram­færslu frá sömu skatt­greið­endum eins lengi og þeir kjósi. Þetta sama fólk er gjarnan að berjast gegn spillingu en ætlast til að ráð­herra breyti á­kvörðunum lög­mætra stjórn­valda eftir eigin geð­þótta. Of­stopinn í þessu fólki er oft svo mikill að það ýmist ræðst fýsískt að ráða­mönnum og skemmir eignir eða líkir ráða­mönnum við mestu of­beldis­menn og harð­stjóra sögunnar. Þeir mildari í þessum hópi láta duga úti­lokanir og smánun,“ skrifar Brynjar.

Þá séu þeir sem krefjist ó­skertrar fram­færslu al­manna­trygginga, óháð at­vinnu­tekjum, ekki síðri frekju­stampar.

„Þetta eru gjarnan sjálf­stæðir at­vinnu­rek­endur og gamlir skalla­popparar sem unnu svart stóran hluta starfs­ævinnar og greiddu því lítinn sem engan tekju­skatt í ríkis­sjóð og þar af leiðandi ekki í líf­eyris­sjóð. Nú telja þau það mann­réttinda­mál að Þor­steinn Már í Sam­herja fái fulla fram­færslu frá al­manna­tryggingum ofan á milljarða arð­greiðslur. Ís­lenskir skatt­greið­endur er mögnuð auð­lind sem gæti nýst öllum heiminum og er greini­lega ó­tak­mörkuð í huga for­réttinda­liðsins,“ skrifar Brynjar, og heldur á­fram.

„Þá er þessi femíníski heimur að fyllast af frekju- og for­réttinda­liði, sem upp­lifir sig kúgað og mis­munað alla daga. Er það ekki bundið við lista-og menningar­liðið heldur gefur í­þrótta­heimurinn lítið eftir. Nú er það stór­kost­leg mis­munun hvort það er einni rósinni minna eða meira í blóm­vendinum eftir 50 lands­leiki eða hvort á­rituð treyja er síð­erma eða stutt­erma eftir 100 leiki. Ég hef fylgst með í­þróttum alla ævi og man þá tíð þegar verið var að reyna að koma á og efla kvenna­deildir í mínu fé­lagi. Það voru karlar sem drifu það á­fram. Þeir þjálfuðu, dæmdu leikina, söfnuðu peningum o.s.frv. Gekk satt að segja illa að fá konur til þessara starfa og skilst að það gangi ekkert sér­lega vel heldur í dag. Svo er kvartað í dag ef ekki eru konur í helstu stjórnunar­stöðum í þessum sam­böndum og hversu karl­lægur hann sé með til­heyrandi kúgun og of­beldi,“ skrifar Brynjar.

Þeim sem verði mis­boðið eftir þessa færslu hans og telji að pólitískur að­stoðar­maður ráð­herra hafi ekki tjáningar­frelsi og það sé hneyksli og frétt að hann haldi ræðu á herra­kvöldum ættu að endur­vekja gömlu undir­skrifta­söfnunina þar sem ráðningu hans var mót­mælt.

„Svo er alltaf hægt að boða til mót­mæla fyrir utan ráðu­neytið. Vil ég benda væntan­legum mót­mælendum á að ráðu­neytið er flutt í Borgar­tún 26.“

Fleiri fréttir