Brynjar Níels­son lætur rit­stjóra DV heyra það: „Eru menn á rit­stjórninni alveg sofandi eða upp­teknir að leika sér í slembi­skák?“

Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Brynjar Níels­son skrifaði ansi á­huga­verða færslu á Face­book í gær þar sem hann gerir frétt á vef­miðlinum DV að um­fjöllunar­efni sínu.

„Þessi frétt lætur ekki mikið yfir sér en er þó merki­leg fyrir margra hluta sakir og segir okkur heil­mikið um ó­jafn­vægi mann­skepnunnar og hversu blaða­börnin eru ráðin ung til starfa nú til dags. Fréttin er um tíst kvenna, sem alltaf er mis­boðið og hneykslast yfir því að þessir mið­aldra stjórn­mála­menn á myndinni skuli vera ræðu­menn á Herra­kvöldi á Sel­fossi og spyrja hvort þeir ætli að halda ræðu um betri klefa­menningu eða hvað og hvort það sé yfir­höfuð í lagi með Sel­fyssinga að bjóða þessum mönnum í bæinn,“ skrifar Brynjar, og lætur fylgja með umrædda frétt af fréttamiðlinum DV.

Með fréttinni fylgir mynd af Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra, og Brynjari sjálfum, en ráð­gert er að þeir fé­lagar mæti til leiks á herra­kvöld knatt­spyrnu­deildar Sel­foss þar­næstu helgi sem ræðu­menn kvöldsins.

„Þessi til hægri á myndinni mun tæp­lega fjalla um klefa­menningu enda ekki komið í búnings­klefa síðan hann var mark­verja í Hvöt á Blöndu­ósi fyrir hálfri öld. Held að það hafi ekki einu sinni verið komnir klefar þá og menn skipt um föt á bak við runna. En þessi til vinstri hyggst flytja lærðan fyrir­lestur um fólk sem er alltaf með saman­bitnar varir og fast með kúst­skaftið í aftur­endanum og getur því aldrei litið glaðan dag. Um fólkið sem hefur fengið allar greiningar sem læknis­fræðin býður upp á og telur sig gjarnan vera lista­menn og með ríkari rétt­lætis­kennd en aðrir en er í raun bara stíflað úr frekju. Þessi fyrir­lestur gæti orðið í lengra laginu,“ skrifar Brynjar, og heldur á­fram.

„En merki­legast við fréttina er þegar blaða­barnið upp­lýsir að ekki hafi náðst í for­svars­menn Herra­kvöldsins til að fá svör við því hvernig það hafi komið til að þessir menn hafi verið valdir ræðu­menn kvöldsins,“ skrifar Brynjar, og hendir fram spurningu á rit­stjóra DV.

„Hvernig er það, Björn Þor­finns­son, eru menn á rit­stjórninni alveg sofandi eða upp­teknir að leika sér í slembi­skák? Það er nefni­lega ára­tuga­hefð fyrir því að mis­heppnaðir stjórn­mála­menn eru fengnir sem ræðu­menn á svona kvöldum og ekki verra ef þeir eru ekki skoðana­lausar lurður fastar í pólitískri rétt­hugsun,“ skrifar Brynjar.

Fleiri fréttir