Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Jóns Gunnarssonar, er orðinn afi. Frá þessu greindi hann í stöðuuppfærslu á Facebook fyrr í dag. Hann segir fæðingu fyrsta barnabarnsins marka þáttaskil í lífi hans.
„Það urðu tímamót í lífi mínu á fimmtudaginn þegar ég varð afi eða foreldri foreldris barns, eins og það mun heita ef frumvarp Pírata nær í gegn. Ég held að vísu að þessi kynlausa veröld "frjálslyndu umbótaaflanna" muni á endanum drepa okkur öll úr leiðindum og löngu áður en þessi jörð verður óbyggileg, sem þó mun vera handan við hornið,“ skrifar Brynjar, og heldur áfram.
„Hef samt tekið eftir því á þessum þrem dögum sem afi að ég hef orðið allur mildari og finn fyrir aukinni samkennd með öðrum. Ég finn mikið til með Birni Leví sem hefur þurft að sæta kúgun og andlegu ofbeldi vegna klæðaburðar. Að geta ekki verið eins og niðursetningur í þingsal er síst minna ofbeldi og kúgun en konur í Íran þurfa að þola,“ skrifar Brynjar.
Hann vilji því biðja hluteigandi aðila afsökunar.
„Ég vil því nota tækifærið að biðja Björn Leví afsökunar á að hafa verið þátttakandi í þessari kúgun og einelti og ekki náð að tengja aðstæður hans við hörmulega stöðu kvenna víða um heim,“ skrifar Brynjar.