Söngkonan Bríet virðist hafa brugðist við gagnrýni aðdáenda sinna með því að hætta að láta sér líka við (e. unlike) yfirlýsingu frá tónlistarmanninum Auðunni Lútherssyni, einnig þekktur sem Auður, á Instagram.
Vakin var athygli á því á samfélagsmiðlum að þjóðþekktir einstaklingar á borð við Bríeti hefðu sett hjarta við yfirlýsingu Auðuns og var kallað eftir því að fólk hætti að fylgja þeim sem tóku afsökunarbeiðni tónlistarmannsins í sátt.
Bríet var ein margra sem létu sér líka við afsökunarbeiðnina en nú er nafnið hennar horfið af listanum. Á síðustu tveimur dögum hefur söngkonan misst yfir hundrað fylgjendur sem gagnrýndu hana fyrir að standa með söngvaranum.
Afsakaði gjörðir sínar
Auðunn sendi umrædda yfirlýsingu frá sér á mánudaginn þar sem hann baðst afsökunar og kvaðst hafa gengið yfir mörk. Tónlistarmaðurinn þvertók þó fyrir flökkusögur um alvarleg afbrot.
Í kjölfar afsökunarbeiðninnar stigu þrjár konur fram í fyrsta skipti og lýstu kynferðislegu ofbeldi af hálfu Auðuns. Tvær þeirra sögðu afsökunarbeiðnina hafa verið „eins og blauta tusku í andlitið.“
@bardig ♬ Lazy Sunday - Official Sound Studio