Faðir Guðbjargar Glóðar Logadóttur, stofnanda og eiganda Fylgifiska, glímdi við spilafíkn á síðustu árum sínum eftir að vírus í heila olli miklum persónubreytingum.
Hann hafði fram að þessu glímt við alkahólisma en eftir að framheilaskaði olli hömluleysi sóttist hann með auknum mæli í spilakassa. Hann lést úr krabbameini árið 2017.
Systir Guðbjargar, sem hafði aðgang að heimabanka föður þeirra, fór inn á reikninginn til að athuga hvort allt væri í skilum og sá hún sér þar til skelfingar að reikningurinn var nánast tómur.
„Tugir milljóna höfðu húrrast út af reikningnum á nokkrum mánuðum og það sem hefði átt að tryggja honum góð efri ár var horfið.“
Guðbjörg deilir sögu um spilafíkn föður síns á vef samtaka áhugafólks um spilafíkn sem standa að baki átakinu „Lokum spilakössum“ á vefsíðunni lokum.is. Þar er reynslusögum deilt til að vekja athygli á spilafíkn í herferð gegn þeirri ákvörðun að spilakassar verði opnaður að nýju eftir kórónaveirufaraldurinn.
Sjá einnig: Sif Sigmars ósátt við Rauða krossinn: Gerir sér að féþúfu berskjaldaðan hóp
Spilakassar hafa verið mikið til umræðu eftir að SÁÁ ákvað að slíta á tengsl sín við Íslandsspil, og þar af leiðandi hætta aðkomu sinni að rekstri spilakassa.
Rauði krossinn á Íslandi hefur einnig óskað eftir samtali við stjórnvöld um leiðir til að reka verkefni félagsins á annan hátt en í gegnum fjármögnum með spilakössum. Þá hefur Rauði krossinn kallað eftir stefnu stjórnvalda um innleiðingu spilakorta.
Sjá einnig:Finni annað en spilakassa til að fjármagna Rauða krossinn
Guðbjörg segir að þrátt fyrir allt hafi hún átt rosalega góðan pabba. Hann hafi endurheimt hann eftir að hann dó enda hafi hann verið eins og önnur manneskja á síðari árum.
„Þegar hann veiktist var hann 49 ára og breyttist í mann sem honum sjálfum hefði ekki fundist skemmtilegur. Það er erfitt að eiga pabba sem er ekki samur en er samt á lífi. Ég hefði kosið að það tímabil hefði verið styttra. Ég lærði að það er ekki endilega það versta í stöðunni að missa fólkið sitt. Hann hefði getað dáið árið 2000 og þá hefði hann dáið sem hetja. Þegar hann dó sautján árum seinna dó allt önnur manneskja. Samt er svo merkilegt að veiku árin hans spólast upp í lítinn kafla sem maður man varla og eftir lifir manneskjan sem ól okkur upp og manni þykir svo vænt um.“
Guðbjörg segir um rekstur spilakassa á Íslandi: „Ég held að þetta sé orðið gott, nú sé rétt að viðurkenna að nóg sé nóg og loka.“