Í dag er pálmasunnudagur, sem er sunnudagurinn fyrir páskana og fyrsti dagur dymbilviku.
Twitter notandinn Guðrún Andrea henti í skemmtilegan brandara í tilefni dagsins og kemur íslenski tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson við sögu í honum.
Brandarinn, sem hefur slegið í gegn á Twitter, er svona:
„Í dag er pálmasunnudagur, eða eins og Pálmi Gunnars myndi segja, sunnudagur“.
Í dag er pálmasunnudagur, eða eins og Pálmi Gunnars myndi segja, sunnudagur
— Guðrún Andrea (@grullubangsi) April 10, 2022