Það getur bjargað jólunum að fá afsökunarbréf. Þetta segir Ólöf P. Úlfarsdóttir í aðsendri grein sem birtist á vef Fréttablaðsins í dag en þar birtir hún bréf sem hún fékk frá Reykjavíkurborg vegna atvika á vinnustað hennar á árunum 2010 til 2014.
„Vegna jólanna þar sem við fögnum fæðingu Frelsarans Jesú Krists, þá langar mig til að hvetja alla til að íhuga fagnaðarboðskapinn. Í honum felst kærleikur sem við getum þegið. Þar á meðal að ganga frá málum sem virðist ætla að fara með yfir á næsta ár,“ segir hún í grein sinni.
„Árið 2020, þann 9. janúar fékk ég afsökunarbréf frá Reykjavíkurborg, frá skóla- og frístundasviði. Það var góð tilfinning að fá þetta afsökunarbréf. Fyrir því hafði ég barist í nokkur ár. Enginn vil líða óréttlæti og ranga háttsemi. Með því að stefna Reykjavíkurborg árið 2019, vegna atburða sem gerðust á vinnustað mínum, ákvað Reykjavíkurborg að bjóða mér í sáttameðferð. Málið var því frágengið þar og er dagsetningin á sátt 13. janúar 2020. Í sáttinni felst m.a. að Reykjavíkurborg greiðir allan kostnað minn af þessu máli.“
Ekki kemur fram í skrifum Ólafar hvaða atvik það eru sem áttu sér stað, en miðað við bréfið sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar skrifar undir, sköpuðust aðstæður á vinnustað hennar á árunum 2010 til 2014 sem höfðu í för með sér mikið álag á hana.
„Vil ég fyrir hönd sviðsins biðjast afsökunar á þessu. Það er einlæg ósk mín að tekist hefði að koma í veg fyrir þessar aðstæður enda á það að vera keppikefli okkar stjórnenda á skóla- og frístundasviði að veita starfsfólki stuðning þegar upp koma ótryggar vinnuaðstæður og tryggja að starfsfólki líði vel í vinnunni,“ sagði Helgi í bréfinu.
„Að lesa afsökunarbréfið er eins og að fá stein lyft af hjartanu, orðað á svipaðan hátt eins og einn blaðamaður sagði mig. Þannig líður mér og ég óska öllum að taka á sínum málum ef mögulegt er og skilja eins sáttur/sátt við árið sem er að líða eins og hægt er. Hvaða aðferðir sem eru notaðar til að leysa ágreining eru sjálfsagt misjafnar. Stundum dugir gott samtal og umhyggja. Í mínu tilviki dugði það ekki og fór ég og lögfræðingur minn því leiðina sem lögin sýna okkur að sé möguleg. Í dag er boðið upp á sáttameðferðir hjá einstaklingum sem hafa sérhæft sig í sátt og samvinnu. Hvort þær bera alltaf árangur veit ég ekki en samvinna og samhugur getur látið mikið af sér leiða.“
Ólöf segir að nú þegar nýtt ár er gengið í garð sé gott að líta til baka og þakka Guði.
„Þeir atburðir sem gerðust í mínu lífi á þessum árum fengu nýja merkingu með afsökunarbréfinu. Vegna áramótanna er svo gott að fá hvatningu til að reyna að gera góða hluti, jafnvel enn betri,“ segir hún og kveðst að lokum vona að árið verði okkur blessunarríkt og fullt af gjöfum Guðs.