Bónus Korpu­torgi lokar: „Slæmar fréttir fyrir Grafar­vogs­búa“

Bónus aug­lýsir í dag út­sölu í dag vegna þess að verslun þeirra á Korpu­torgi lokar í dag. Á sama tíma þakka þau við­skiptin og benda á að opið verði í næstu verslunum sem eru í Spöng og í Mos­fells­bæ.
Ekki virðast allir sáttir við þessa breytingu og segja mikla eftir­sjá eftir henni.

„Þetta er min búð og það er mikil eftir­sjá af henni, var að vona svo inni­lega að hún yrði þarna á­fram,“ segir Jóna Birna Guð­manns­dóttir.

„Það verður slæmt að missa þessa verslun. Nýja búðin í Mosó er með slæma að­komu og lítið af bíla­stæðum og verslunin í Spöng þarnast upp­liftingar,“ segir Karl Gunn­laugs­son og undir það tekur Gunnar Guð­jóns­son sem segir bíla­stæðin í Mos­fells­bænum ekki not­hæf.

Fleiri fréttir