Sóttvarnalæknir, Þórólfur Guðnason, hefur ákveðið að framkvæma bólusetninguna héðan í frá með tilviljunarkenndum hætti innan hvers forgangshóps í stað þess að boða viðkomandi einstaklinga eftir aldri.Það gerir hann með tilliti til upplýsinga úr líkani Íslenskrar erfðagreiningar um árangur bólusetninga miðað við mismunandi nálgun. Frá þessu er greint í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Þar kemur einnig fram að þetta verði gert til að bólusetja áhættuhópa sem fyrst en ná samhliða bólusetningu þvert á aldurshópa og ná þannig fyrr markmiði um hjarðónæmi í samfélaginu.
Nú eru um 51.000 einstaklingar fullbólusettir gegn COVID-19 og um 140.000 hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni, sem er samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu, 48 prósent af þeim sem áætlað er að bólusetja.
Tilkynning ráðuneytisins er hér