Boðuðum upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar sem fara átti fram klukkan 11 hefur verið aflýst. Ekki hefur verið gefin út ástæða fyrir þessu en í tilkynningu segir að upplýsinga sé að vænta síðar í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma Möller landlæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn áttu að vera á fundinum.
Viðbúið er að töluverður fjöldi smita hafi greinst í gær og til marks um það eru allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugarlækjarskóla komnir í úrvinnslusóttkví. Fjórir nemendur úr Laugarnesskóla hafa greinst með COVID-19 í vikunni og greindist kennari við skólann á sunnudag.
Þrír nemendur greindust í gær og sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, í samtali við Fréttablaðið í morgun að fleiri nemendur úr Laugarnesskóla væru smitaðir en var ekki með tölu á því hversu margir þeir væru.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, segist á Facebook-síðu sinni vera hræddur um að nýjar COVID-19 tölur í dag og næstu daga muni koma illa við marga.
„Breska afbrigðið hefur mikla smitgetu og leggst frekar á börn en fyrri útgáfur þessarar mögnuðu veiru sem er alls ekkert hætt. Förum varlega kæru vinir svo við lendum ekki í sömu súpu og nágrannaþjóðirnar sem ráða ekki neitt við neitt.“