Blær Hinriksson vann í gær til verðlauna á Sarajevo kvikmyndahátíðinni fyrir leik sinn í íslensku kvikmyndunum Hjartasteinn og Berdreymi.
Faðir hans, Hinrik Ólafsson sagðist vera stoltur af syni sínum á Facebook.
„Hér í Sarajevo Film Festival hlaut Blær verðlaun í gær fyrir leik sinn í kvikmyndunum, Hjartasteini og í Berdreymi.( leikstjGudmundur Arnar) Báðar þessar myndir hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim og fengið á annaðhundrað viðurkenningar,“ segir Hinrik.
„Hér á kvikmyndahátíðinni Sarajevo hefur fólk tjáð sig á mjög svo áhrifaríkan hátt um þessi verk. Mariano Biasin leikstjóri sagði í hátíðarræðu að Hjartasteinn hafi haft svo víðtæk áhrif á sig að nýjasta mynd hans sé endurkast af henni. Auðvitað erum við sollt af syni okkar og íslenskri kvikmyndagerð.“