Þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson veltir fyrir sér skipun embættismanna án auglýsingar í nýjasta blogginu sínu. Hann segir það ekki miklar kröfur að stjórnmálamenn vinni faglega og segir að tækifærismennska og valdabarátta séu ráðandi í íslenskum stjórnmálum.
„Í síðustu viku var enn einn embættismaður skipaður í stöðu án auglýsingar. Í samantekt forsætisráðuneytisins sem mbl.is fjallaði um í október á síðasta ári kemur fram að um 20 prósent embættisskipanna á árunum 2009 til 2022 hafi verið án auglýsingar. Áður hafði þjóðminjavörður verið skipaður án auglýsingar, viðkomandi var víst sérstaklega hæf og uppfyllir öll skilyrði,“ segir Björn.
Þarna er Björn að vísa í það að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, skipaði nýjan forstjóra Sjúkratrygginga án auglýsinga og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, skipaði Þjóðminjavörð án auglýsingar.
Björn segir það vissulega í lögum að það sé til svigrúm í lögum til þess að færa fólk í starfi án auglýsingar, þó umsagnir og álit um þær lagabreytingar gerðu ráð fyrir því að sambærilegt starf myndi þá verða laust á sama tíma, sem myndi þá verða auglýst.
„Á meðan þau rök hljóma skynsamlega þá verðum við að skoða hvernig heimildin er notuð. Í þessum tveimur nýlegu tilvikum þá er um að ræða stöðuhækkun. Það er strangt til tekið ekki verið að flytja fólk í starfi. Það er verið að veita fólki stöðuhækkun og auglýsingin sem kemur í kjölfarið er vegna öðruvísi starfs en þess sem hefði átt að auglýsa,“ segir Björn.
Björn segir að sú umræða hafi komið upp að Píratar hefðu svo mikið prinsipp að enginn flokkur hefði áhuga á að vinna með þeim í meirihluta. Ef eitthvað prinsippmál kæmi upp þá myndu þau segja sig úr ríkisstjórn.
„Þetta er mjög áhugaverð spurning, því stjórnmál hljóta að snúast um prinsipp. En við erum kannski orðin svo vön því að stjórnmálamenn selji sálu sína á altari valdsins að við einfaldlega búumst ekki við neinum prinsippum,“ segir Björn.
Björn segir það ekki miklar kröfur að vilja að stjórnmálamenn vinni faglega.
„Nei. Píratar hlaupa ekki undan ábyrgð en við krefjumst ábyrgðar. Svona endurteknar stöðuhækkanir án auglýsingar eru ekki fagleg vinnubrögð. Við eigum að geta gert betur og þurfum að gera kröfu að stjórnmálamenn geri betur. Það ætti að hringja öllum viðvörunarbjöllum þegar stjórnmálaflokkar treysta sér ekki til samstarfs við flokk sem gerir bara einfaldar kröfur um fagleg vinnubrögð. Það er góð vísbending um að það er eitthvað mikið að í íslenskum stjórnmálum - „tækifærismennska, valdabarátta.”,“ segir Björn að lokum.