Björn Leví með afar á­huga­verða stað­reynd: „Ég er viss um að það er brandari þarna en ég er bara ekki grín­isti“

„Vissuð þið að norskar kýr gefa um það bil 50% meiri mjólk af sér en ís­­lenskar? Það væri sem sagt hægt að vera með þriðjungi færri kýr til að fram­­leiða sama magn af mjólk ef við færum sömu leið og helstu saman­burðar­­rík,“ skrifar Björn Leví Gunnars­son þing­maður Pírata á Face­book í dag.

„En þið vitið, út­­lenskar kýr sko. Til þess að það sé hægt þá þarf að breyta lögum um út­­lendinga til þess að herma eftir Norð­­mönnum og Dönum ...
Ég er viss um að það er brandari þarna ein­hvers staðar en ég er bara ekki grín­isti. Mér finnst í al­vörunni sér­­stakt að velja verri kostinn bara af því að hann er ís­­lenskur þegar aðrir geta betur. Það kallast sóun,“ skrifar Björn Leví að lokum.

Fleiri fréttir