„Já ég er kominn með Covid. Ég er bara með smá hósta og hausverk, en ekkert eitthvað stórvægilegt, en einkenni og tvö strik,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans.
Björn Ingi var sjálfur duglegur að mæta á upplýsingafundi þríeykisins svo kallaða og spyrja um allt sem tengist Covid veirunni. Sjálfur hafði hann aldrei fengið veiruna og hélt hann að hann myndi sleppa við veiruna skæðu.
„Ég hélt að það kæmi ekkert að því hjá mér. Ég er búinn að vera með börn í einangrun og hef sjálfur aldrei fengið þetta, maður verður svolítið undrandi þegar það kemur að þessu en það geta allir lent í þessu,“ segir Björn.
Björn segir að núna þurfi hann að finna sér einhverja góða þætti til að horfa á á meðan hann bíði þetta af sér. Hann býst hins vegar ekki við að fá matarsendingar og annað upp að dyrum.
„Maður þarf að breyta öllu og afbóka einhverja fundi og finna sér eitthvað gott að horfa á og bíða þetta af sér. Þetta er svona skrítið, vegna þess að þegar þetta gekk sem mest þá var fólk að fá ostakörfur og glaðninga fyrir framan hurðina, en nú er enginn að kippa sér upp við þetta,“ segir Björn og hlær. „Það er aðeins minni stemning fyrir þessu.“
„Maður er búinn að vera nálægt þessu svo oft áður en alltaf sloppið, svo núna þegar maður á ekki von á því þá kemur þetta,“ segir Björn.