Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, hefur blokkað Margréti Friðriksdóttur, frumkvöðlafræðing og kristilega hægrikonu, að því er virðist fyrir að spyrja gagnrýnna spurninga. Þannig orðar Margrét það að minnsta kosti í færslu sem hún birtir á Facebook í dag.
„Passa sig að spyrja ekki gagnrýna spurninga á veggnum hans Björn Inga hjá Viljanum þá blokkar hann fólk, blaðamenn sem þola ekki gagnrýnar spurningar geta seint talist góðir blaðamenn,“ skrifar Margrét.
Björn Ingi segist hafa heyrt í mörgu áhyggjufullu eldra fólki undanfarið sem vantreystir bóluefni AztraZeneca sem gefið var sjötugum og eldri í Laugardalshöllinni í dag.
„Svar mitt er að ég treysti faglegri ráðgjöf Þórólfs og Ölmu, þau myndu aldrei stefna mörg þúsund manns af okkar dýrmætasta fólki í neina hættu. Kostirnir við vörn gegn þessari veiru eru langt umfram mögulegar aukaverkanir,“ skrifar Björn Ingi og birtir mynd af foreldrum sínum sem hafa bæði verið bólusett.
Margrét virðist ekki bera sama traust til bóluefni AstraZeneca og Björn Ingi og telur að ekki einu sinni Landlæknir treysti á það. Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkru að starfsmaður hafi fullyrt að Alma Möller landlæknir og eiginmaður hennar hafi bannað að náinn aðstandandi þeirra á hjúkrunraheimilinu Sóltúni yrði bólusettur. Lekinn á þessum upplýsingum úr sjúkraskrá vistmanns hefur verið tilkynntur bæði til Persónuverndar og Landlæknis og í undirbúningi er kæra til lögreglu vegna málsins.
„Af hverju lét hún taka tengdamóður sína úr bólusetningarröðinni ef hún telur svona öruggt, á sama tíma var náinn ættingi minn þvingaður í þetta gegn hennar vilja án þess að vera látin skrifa undir samþykki, býr á öldrunarheimili, eitthvað sem stenst ekki hér,“ skrifar Margrét við færslu Björns Inga.