Björn Birgisson, Grindvíkingur og samfélagsrýnir, er allt annað en sáttur með kostnaðinn á innanlandsflugi þessa daganna.
Hann og eiginkona hans ætluðu að skella sér vestur seint í ágúst og bókuðu flug í gærmorgun.
„Það kostar „aðeins“ rúmlega 143 þúsund fyrir okkur hjónin á þeim dögum og tíma sem hentaði best,“ skrifar Björn.
Verðið var 71,535 krónur á mann og því 143,170 krónur fyrir þau bæði.
„Ekki er hægt að tala um skamman fyrirvara! Hélt kannski að ég væri að kaupa sætin en við fáum vist bara að nota þau á meðan fluginu stendur!“ bætir Björn við.