Björk á tortóla?

Björk Guðmundsdóttir söngkona er sögð fremst meðal Íslenskra jafningja þegar kemur að eignum á Tortóla.

Upplýsingar um Panamaskjölin leka nú í allar áttir þó fullur trúnaður eigi að ríkja um innihald þeirra. Þjóð veit þá þrír vita. Nú eru þessar viðkvæmu upplýsingar í höndum þriggja fjölmiðla og fjöldi þeirra sem eiga orðið aðgang að upplýsingum skiptir tugum.

Í svo smáu samfélagi sem okkar, þar sem allir þekkja alla, verða upplýsingar af þessu tagi einkar áhugaverðar og safaríkar. Því er lekinn kominn á fulla ferð og um fátt annað rætt, hvort heldur er í reykmettuðum bakherbergjum viðskiptalífsins eða á rakarastofum og í saumaklúbbum.

Fullyrt er að Björk Guðmundsdóttir eigi sjóði á Tortóla. Ótrúlegar tölur hafa verið nefndar um þann fjölda milljarða sem hún er sögð geyma í skattaskjólinu.

Björk mun vera miklu sterkari á Tortóla en nokkur íslenskur útrásarvíkingur eða sægreifi. Innan skamms mun Íslenskur fjölmiðill upplýsa um auðæfi söngkonunnar á Tortóla. Þar munu vera á ferðinni tölur sem gera þekktustu útrásarvíkinga og kvótakónga okkar smáa í sniðum.

Björk Guðmundsdóttir er frægasti Íslendingurinn um þessar mundir og jafnvel einnig sá ríkasti.

Uppljóstranir um Tortólaeignir hennar gætu átt eftir að vekja heimsathygli.