Undanfarið hefur borið á því á öldurhúsum borgarinnar að bjór sé borinn fram í 0,4 lítra glösum í stað 0,5 lítra, sem var algengasta viðmiðið hér áður fyrr. Formaður Neytendasamtakanna varar þó við mögulegri vöruskerðingu.
Fréttablaðið greindi frá þessu í dag.
Arnar Þór Gíslason sem rekur meðal annars Lebowskibar, Kalda Bar, Irishman Pub og Den Danske Kro segist ætla að halda sig við 0,5 lítra stóran bjór á sínum stöðum.
„Þeir staðir sem ég er með þar er 0,5 stór bjór. Hefur alltaf verið og mun alltaf vera hjá okkur en svo virðist vera að það eru einhverjir staðir sem eru bara að keyra á 0,4,“ segir Arnar.
Hann bætir því við að þetta megi skýra af því að bjórar séu orðnir mjög misdýrir og missterkir í áfengismagni. Þannig séu svokallaðir craft-bjórar með hárri áfengisprósentu oft og tíðum mun dýrari heldur en hefðbundnari lagerbjórar frá stórum brugghúsum.
Sigmar Vilhjálmsson er landsmönnum löngu orðinn kunnur sem veitingamaður en hann rekur nú staðina Minigarðinn og Bryggjuna Steikhús. Sigmar segir stærðir á bjórum hafa breyst nokkuð á undanförnum árum.
„Í den varstu með stóran og lítinn bjór. Þú varst með hálfan lítra og svo varstu með 330 millílítra. Síðan var þetta eiginlega bara orðinn hálfur lítri og síðan kom craft-bjórmenningin og byrjaði meira að bera þetta fram í 0,4,“ segir Sigmar eða Simmi eins og hann er oftast kallaður.
Breki Karlsson, formaður neytendasamtakanna, segist enn ekki hafa fengið neinar kvartanir eða ábendingar inn á borð til sín varðandi þessa minnkun á bjór. Hann segir þetta þó ekki vera óþekkta aðferðafræði í sparnaðarrekstri.
„Þetta er ekkert óþekkt aðferðafræði. Þetta heitir shrinkflation á ensku eða vöruskerðing. Þetta er náttúrlega ósiður sem er ekki óþekktur.“
Greinina í heild sinni má lesa hér.