Bjarni vill frekar eiga kvöld­stund með Ingó en Gunnari Smára: „Kvöld­stund með Gunnari er fyrir fram dauða­dæmd“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var gestur í hlað­varpinu Ein pæling í vikunni en þar var hann spurður hvort hann myndi frekar eða kvöld­stund með Gunnari Smára for­manni Sósíal­ista­flokksins eða söngvaranum Ingó Veður­guð.

„Æ, ég myndi vilja Ingó Veður­guð. Ég myndi biðja hann um að taka gítarinn og bara, þú veist, að reyna að hafa góða kvöld­stund með Gunnari Smára, ég held að það sé fyrir fram dauða­dæmt,“ sagði Bjarni.

Svar Bjarna var um­fjöllunar­efni Ís­lands í dagen þar voru rakin fjöl­mörg orð Gunnars Smára um Bjarna.

Gunnar Smári kallaði Bjarna mörgum slæmum nöfnum þegar hann reyndi að komast á þing en hafði ekki erindi sem erfiði.

Fleiri fréttir