Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra lýsir furðu á athugasemdum Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, um færslu sem Bjarni birti í febrúar á þessu ári þar um rannsókn lögreglunnar á Þórði og þremur öðrum blaðamönnum.
„Færsla Bjarna var fordæmalaus og grafalvarleg, enda öllu skynsömu fólki ljóst að þar var valdamikill stjórnmálamaður að skipta sér af lögreglurannsókn á blaðamönnum og koma vilja sínum um framgang hennar skýrt til skila,“ sagði Þórður í grein sem hann birti á vef Kjarnans í dag en færsluna birti Bjarni birti á Facebook-síðu sinni þann 15. febrúar á þessu ári.
Í grein sinni fór Þórður yfir rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á fjórum blaðamönnum, umfjöllun fjölmiðla um hana, aðkomu stjórnmálamanna og það sem gögn málsins sýna um málið.
„Þórður Snær Júlíusson sér nú ástæðu til að ítreka athugasemdir sínar við því að ég hafi haft skoðun á fréttaflutningi af lögreglurannsókn norður í landi. Athugasemdir mínar segir hann hafa verið fordæmalausar og grafalvarlegar,“ segir Bjarni á Facebook og að það sé sorglegt hversu langt frá kjarna málsins Þórður sé kominn.
„Hann sér óvin í mér og stillir málinu þannig upp að annað hvort sé maður með blaðamönnum eða lögreglunni í liði. Hvers konar furðuskrif eru þetta?“ spyr Bjarni og leggur svo fram tvær athugasemdir um það sem Þórður segir um að fréttir af málinu hafi að miklu leyti verið byggðar á getgátum um það hvers konar brot lögreglan væri að rannsaka og að jafnvel þótt svo að blaðamenn njóti verndar þá þýði það ekki að þeir geti skorast undan því að mæta í skýrslutöku séu þeir boðaðir til hennar.
„Í fréttum var helst rætt við lögmenn sem höfnuðu þessum skilningi og mjög einhliða mynd var dregin upp af lagalegri stöðu málsins. Allt byggt á getgátum um efni máls. Í millitíðinni hefur Landsréttur staðfest í afdráttarlausum úrskurði að lögreglan mátti boða blaðamennina í skýrslutöku. Þeir hafa nú allir mætt til skýrslugjafar samkvæmt fréttum. Framvindan sem sagt nákvæmlega sú sem ég taldi að lögin gerðu ráð fyrir. Þvert á allt það sem sagt var í fréttum um málið,“ segir Bjarni og að með færslu sinni hafi hann verið að biðja um „meira jafnvægi í fréttum og vönduð vinnubrögð.“
Bjarni segir svo að þeir sem fjallað hafa um málið megi læra af því.
„Ég er hvorki í liði með lögreglunni eða í liði gegn þessum blaðamönnum. Ef ég er í einhverju liði þá er ég í liði með lögunum. Með lögum skal land byggja,“ segir Bjarni og lætur svo fylgja með umfjöllun um úrskurð Landsréttar sem kvað um að það mætti kalla blaðamennina fjóra í skýrslutöku.
Færsluna er hægt að lesa hér að neðan í heild sinni.