Bjarni ósáttur: „Ég klóra mér í skegginu og hugsa: af hverju gera menn þetta?“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra svaraði færslu Helga Seljan á Twitter og gagn­rýndi þar blaða­menn sem búa til heimsku­legar fyrir­sagnir sem hann segir vera upp­spuna.

„Ég sagði aldrei heimsku­legt að mæla fylgi. Svo dreifa menn upp­spunanum. Ég klóra mér í skegginu og hugsa: af hverju gera menn þetta? Fyrir smelli?“ sagði Bjarni á Twitter.

Í gær var Bjarni í við­tali við Lindu Blön­dal á Hring­braut þar sem hann var spurður út í nýjustu kannanir varðandi fylgi flokkana. Viðtalið var birt á Fréttablaðinu.

„Mér finnst þetta heimsku­leg nálgun að reyna reikna þing­sæti þegar það er ekki eitt ár frá kosningum. Það eru þrjú ár í kosningar. Að reyna reikna þing­sæti og segja að ein­hver hafi tapað þing­sætum, við höfum engum þing­sætum tapað, við erum bara með þau öll og verðum með þau í þrjú ár í við­bót.“

Viðtalið í heild sinni má sjá hér og einnig hér fyrir neðan. Viðtalið við Bjarna hefst á 05:15.

Fleiri fréttir