Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, sem nú sækjast báðir eftir formannssætinu í Sjálfstæðisflokknum munu mætast í Fréttavaktinni í kvöld klukkan 18:30.
„Ég óttast ekki neitt og líður stundum eins og gömlum hermanni í þessu, maður hefur fengið skrámur og einstaka ör og það er búið að sauma það allt saman og maður heldur áfram og maður er reynslunni ríkari. Ég hef aldrei verið með meiri þekkingu á íslenskum þjóðmálum en í dag.“ segir Bjarni um báráttuna sem framundan er við Guðlaug, sem tekur í sama streng:
„Það er engin ástæða til að óttast neitt í þessu. Ég held að stutt kosningabarátta sé góð fyrir okkur í þessu. Ég finn fyrir stuðningi og stemningu og það er gaman í kosningabaráttu. Ef við gerum þetta vel þá komum við sterkari á eftir.“
Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson mætast á Fréttavaktinni í kvöld á Hringbraut kl. 18:30. Hægt er að horfa í opinni dagskrá og á vef Fréttablaðsins.