Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra segir að hann hafi heyrt í Guðlaugi Þór í morgun en að hann verði að fá að „eiga sitt móment“. Það sagði Bjarni á Sprengisandi í Bylgjunni í morgun. Hann sagði að ef hann nær ekki kjöri á landsfundi næstu helgi sem formaður þá hætti hann í stjórnmálum.
Bjarni sagðist alltaf hafa verið skýr með það að það eigi engin tilkall til formannsembættisins eða nokkurs annars embættis innan flokksins. Það sama gildi um sæti á Alþingi.
Spurður hvernig hann líti á mögulegt framboð Guðlaugs til formanns sagði Bjarni að hann hafi átt samtöl við Guðlaug síðustu daga um stöðuna.
„Það hafa ekki komið fram neinar ábendingar eða gagnrýni sem varða málefnalegar áherslur Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Bjarni og að hann myndi skilja mjög vel ef gagnrýnin væri þannig en að þetta varði meira innra starfs flokksins, verkaskiptingu og hvernig unnið er innan hans.
Bjarni sagði að það mætti vel kjósa um það en að það sem hann ætlaði að einbeita sér að væri það sem hann lofaði að gera í kosningunum síðasta haust, og það væri að ná árangri.
„Þetta er bara gamaldags valdabarátta,“ sagði Bjarni og að auðvitað væri hann sammála því sem Guðlaugur hefur sagt að flokkurinn sé ekki með nægilegt fylgi en að leiðin til að laga það sé ekki að skapa fylkingar eða átök innan flokksins.
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.