Birtu lista yfir kaupendur í Íslandsbanka: Þorsteinn Már, Guðbjörg í Ísfélaginu og faðir fjármálaráðherra

Fjármálaráðuneytið hefur nú birt lista yfir helstu kaupendur í útboði Íslandsbanka en þann 22. mars fór fram sala á á 22,5 prósent hlut í bankanum.

Meðal kaupenda er faðir fjármálaráðherra, Benedikt Sveinsson, en hann keypti 0,1042 prósent hlut í bankanum í nafni félagsins Hafsilfur sem er í hans eigu. Benedikt keypti fyrir um 54 milljónir í útboðinu en einnig á meðal stærri kaupenda er Eignarhaldsfélagið Steinn ehf. sem er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, eigenda Samherja. Hann keypti fyrir tæpar 300 milljónir í útboðinu.

Guðbjörg M Matthíasdóttir keypti fyrir tæpan hálfan milljarð en Guðbjörg er aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og einn eigenda Morgunblaðsins.

Rafkaup keypti einnig fyrir um 300 milljónir en Sólveig Nanna Hafsteinsdóttir er skráður eigandi, félagið Íshóll ehf. sem er í eigu fjárfestisins Stefáns Ákasonar keypti einnig en bæði keyptu þau fyrir um 270 milljónir í bankanum.

Þá keypti Pálmi Haraldsson, eða Pálmi í Fons, fyrir um 224 milljónir í gegnum fyrirtæki sitt Sólvellir. Jóhann Halldórsson keypti fyrir um 180 milljónir í gegnum félag sitt s8 ehf.

Þórður Már Jóhannesson, fjáfestir, keypti í gegnum tvö félög. Brekka Retail Ehf. og Fjárfestingarfélagið Brekka fyrir samtals um 108 milljónir.

Meðal annarra kaupenda eru til dæmis félagið Klambratún sem er í eigu Ólafs Andra Ragnarssonar, Íslensk tónlist ehf sem er í eigu Sölva Blöndal og Sigurðar Reynis Harðarsonar, og fjárfestirinn Halldór Karl Högnason keypti í gegnum félagið Valshöfði.

Nánar er hægt að lesa um málið á vef Fréttablaðsins hér.

Fleiri fréttir