Birkir Leósson, löggiltur endurskoðandi, hyggst kæra Þórólf Matthíasson, hagfræðiprófessor, til siðanefndar Háskóla Íslands vegna skrifa hans um uppáskriftir endurskoðenda á ársreikninga útgerðarfyrirtækja.
Þórólfur og Birkir hafa átt í ritdeilu á síðum Fréttablaðsins í kjölfar sölu á Vísi í Grindavík til Síldarvinnslunnar. Þórólfur gagnrýndi það í grein, 15. júlí síðastliðinn, að endurskoðendur skrifuðu upp á ársreikninga útgerðarfyrirtækja sem gæfu ranga mynd af fjárhagsstöðu þeirra vegna þess að verðmæti aflaheimilda væru vanmetin. Þess vegna væru efnahagsreikningar þeirra skáldskapur.
Birkir, sem meðal annars skrifaði upp á ársreikning Vísis 2013, sem Þórólfur vísaði sérstaklega til í grein sinni, svaraði Þórólfi í grein sem birtist 21. júlí og sagði ársreikninga og endurskoðun þeirra lúta ströngum skilyrðum á alþjóðavísu og þvertók fyrir að nokkuð sé athugavert við endurskoðun ársreikninga útgerðarfyrirtækja hér á landi, ekki megi eignfæra aflaheimildir þar sem þær séu skilgreindar sem óefnislegar eignir.
Þórólfur svaraði á ný þriðjudaginn 26. júlí og sagði endurskoðendur útgerðarfyrirtækja hunsa 5. grein laga um ársreikninga, sem kveður á um að gera verði grein fyrir öllum eignum sem hafi verulega þýðingu til að glögg mynd fáist af fjárhagsstöðu fyrirtækisins, jafnvel þótt aðrar greinar kveði á um annað.
Hægt er að lesa meira hér.