Birki Blær Óðinsson fór með sigur af hólmi í sænska Idolinu í kvöld. Hann keppti á móti Jacqline Mossberg Mounkassa. Sigri keppninnar fylgir útgáfusamningur við Universal auk peningaverðlauna.
Birkir Blær söng alls þrjú lög í keppninni í kvöld. Eitt sem hann hefur áður sungið, eitt lag með Adele og svo síðast lagið Weightless sem að sérstaklega er samið fyrir lokakeppnina. Hann og keppinautur hans Jacqline Mossberg Mounkassa sungu það bæði en Birkir Blær söng lagið aftur eftir að tilkynnt var um sigur hans. Það verður svo formlega gefið út núna í kjölfar sigursins.