Birgir hjólar í Þórunni: „Mikið er þetta ó­smekk­legt og ó­geð­fellt“

Birgir Dýr­fjörð, fyrr­verandi vara­þing­maður Norður­lands-vestra fyrir Al­þýðu­flokkinn vaðar í Þórunni Svein­bjarnar­dóttur, þing­manns Sam­fylkingarinnar í að­sendri grein á Vísi. Hann segir að Þórunn sé ó­gáfu­leg og leiði til sundrungar innan flokksins.

Þann 20. októ­ber síðast­liðinn birtist að­send grein eftir Þórunni í Frétta­blaðinu, þar sem hún skaut föstum skotum á svo kallaða eðal­krata sem leggja lykkju á leið sína til að koma höggi á Ingi­björgu Sól­rúnu Gísla­dóttur. Einnig vonaðist hún til þess að Krist­rún Frosta­dóttir, til­vonandi for­maður Sam­fylkingarinnar muni njóta sann­mælis.

„Mikið er þetta ó­smekk­legt og ó­geð­fellt. Þórunn lætur að því liggja að lýð­ræðis-jafnaðar­menn, sem hún kallar eðal­krata muni ekki láta Krist­rúnu Frosta­dóttir njóta sann­mælis sem for­maður,“ segir Birgir, sem segir að hann sé oft kallaður eðal­krati og biðst hann því undan ó­mak­legum dylgjum Þórunnar.

„Nú er spurt, af hverju lætur Þórunn í það skína að, „svo­kallaðir eðal­kratar“ komi í veg fyrir ,að nýr for­maður fá notið sann­mælis í starfi. Af hverju gerir hún sig svona smáa frammi fyrir al­þjóð?. Ég tel mig vita svarið. Það er kunnugt að smár hollustu-hópur heldur því fram að aumur árangur Þórunnar Svein­bjarnar­dóttur í síðustu Al­þingis­kosningum sé, „svo­kölluðum eðal­krötum“ að kenna. Þeir hafi brugðist. Sú kenning stenst ekki. Til þess eru „eðal-kratarnir“ of fáir,“ segir Birgir.

„Eftir skipan Þórunnar í efsta sæti þá lýstu margir því yfir, að þeir myndu skila auðu at­kvæði á kjör­degi. Auðir at­kvæða­seðlar reyndust vera 1096. Það var Ís­lands­met. Þessu til við­bótar varð flokkurinn að una 28% fylgis­tapi frá kosningum þar áður. Þær kosningar voru þó grát­lega rýrar í kjör­fylgi. Fylgis­hrunið var ekki „svo­kölluðum eðal­krötum“ að kenna. Þar var mest um að kenna, að lýð­ræðið var snið­gengið þegar efsta sæti listans var á­kveðið. Venja lýð­ræðis-krata er, að flokks­fólkið fái sjálft að ráða efstu sætum (með próf­kjöri). Efsta sæti listans var troðið með hand­afli upp í flokks­fólk. Því var meinað að koma að skipan þess. Stór hluti kjós­enda neitaði að kyngja að­ferðinni og skilaði auðu. Aðrir kusu annan flokk, því miður,“ segir Birgir.

Hann segir að það hafi ekki verið „eðal­krötunum“ að kenna, heldur þeim sem tóku sér það vald að raða einir á listann.

„Öll viljum við vera jafnaðar­fólk, um­burðar­lynd og sann­gjörn. Gæða­flokkun fólks eftir pólitískum upp­runa, að hætti Þórunnar Svein­bjarnar­dóttur er því ekki bara ó­smekk­leg. Hún er ó­gáfu­leg og leiðir til sundrungar í flokknum,“ segir Birgir að lokum.

Fleiri fréttir