Raunveruleikastjarnan Brynar Steinn, eða Binni Glee eins og hann er kallaður var ekki sáttur við að þátturinn ÆÐI hafi ekki verið tilnefndur til Edduverðlauna.
ÆÐI er raunveruleikaþáttur sem fjallar um Binna Glee, Bassa Maraj og Patreki Jamie. Þættirnir hafa vakið mikla athygli og hafa verið gerðar þrjár seríur um þessa skemmtilegu stráka og ævintýri þeirra.
Hins vegar voru þættirnir ekki tilnefndir til Edduverðlauna og var Binni alls ekki sáttur og sagði:
„Það að Eddan gaf ÆÐI ekki tilnefningu í ár er homophobic.“
Patrekur Jamie tjáði sig einnig undir færslu Binna og sagði:
„Sjokki“ og lét trúða-tjákn fylgja.
það að eddan gaf ÆÐI ekki tilnefningu í ár er homophobic.
— BRYNJAR (@binniglee) April 28, 2022