Bíl­prófs­lausir bræður slá í gegn undir stýri: „Búið að vekja mikla at­hygli síðustu tvö ár“

Bræðurnir Daníel Jökull og Adam Máni Valdimars­­synir mynda lang yngstu á­höfn sem hefur nokkurn tímann mætt til leiks í rallý spretti á Ís­landi og munu þeir reyna fyrir sér á Reykja­víkur­­leikunum um komandi helgi. Þetta kemur fram í fréttFrétta­blaðsins.

Á laugar­­daginn hefst keppni í rallý-spretti á Reykja­víkur­­leikunum 2023 á kvart­mílu­brautinni í Hafnar­­firði. Meðal kepp­enda má finna bræðurna Daníel Jökul sem er 16 ára gamall og Adam Mána sem er 14 ára. Þeir mynda langyngsta rallý-sprett sögunnar á Ís­landi og faðir þeirra, mótor­­sportöku­­maðurinn Valdimar Örn Sveins­­son, segir það hafa legið lengi í loftinu að synir hans myndu feta sömu leið og hann.

„Þetta er búið að vekja miklu at­hygli síðustu tvö ár, frá því að eldri strákurinn byrjaði að keppa. Svo er yngri bróðir hans farinn að taka sín fyrstu skref í þessu og þá náttúru­­lega vekur þetta enn meiri at­hygli,“ segir Valdimar við Frétta­blaðið, spurður um á­huga sona hans á mótor­­sporti.

„Þeir eru svona að taka sín fyrstu skref í þessu, Adam Máni verður yngsti að­­stoðar­öku­­maðurinn í sögu mótor­­sports á Ís­landi sem og yngsti öku­­maðurinn þar sem hann mun aka þúsund kúbika bíl um helgina.

Hann er því að fara stela því meti af eldri bróður sínum sem hefur átt metið í tvö ár núna. Daníel var ekki alveg nógu sáttur við það en svona er þetta bara.“

Valdimar er sjálfur með yfir tuttugu ára feril í mótor­­sporti en hann byrjaði þó ekki eins snemma og synir hans að þreifa fyrir sér í í­­þróttinni.

„Ég hef nánast keppt í öllum greinum mótor­­sports, þó mest í tor­­færu og rallý en byrja þó ekki fyrr en ég var tuttugu og þriggja ára gamall í þessu brölti.

Strákarnir mínir hafa hins vegar verið að síðan þeir voru tveggja ára gamlir. Þá fara þeir að reyna fyrst fyrir sér á fjór­hjólum og mótor­kross­hjólum.Þá hafa þeir, eftir því sem þeir urðu eldri, verið að leika sér á þessum tækjum auk vél­sleða og go-kart­bíla og byrja svo að taka þátt í keppnum 14 ára gamlir.“

Mynd: Valdimar Jón

Eldri bróðirinn, hinn 16 ára gamli Daníel Jökull, byrjaði um leið og hann náði 14 ára aldri að keppa í rallý, drifti og ral­­lý­­krossi. Það varð fljótt ljóst að hann ætti fullt erindi í mótor­­sport en nú þegar er hann orðinn tvö­faldur Ís­lands- og bikar­­meistari í sínum flokkum.

Valdimar segir mótor­­sport­bakteríuna hafa gripið þá Daníel og Adam fljótt.

„Það var eigin­­lega ekki annað hægt. Þeir voru með mér á öllum keppnum alveg frá því að þeir voru pínu­­litlir, þeir sýktust bara af þessu strax og hafa alist upp við þetta alla tíð.

Þeir skrúfa sjálfir, mála bílana sjálfir og gera sjálfir við. Sjálfur rek ég bíla­­verk­­stæði sem tekur að sér að mála bíla, rétta og gera við bíla og þeir hafa því í gegnum árin verið að sniglast hérna í kringum mig á verk­­stæðinu.“

Hægt er að lesa við­tal Frétta­blaðsins hér.

Mynd: Valdimar Jón

Fleiri fréttir