Lögreglumaðurinn geðþekki Birgir Örn Guðjónsson, best þekkur sem Biggi lögga, segir að hann hafi orðið var við aukinn vopnaburð meðal unglingspilta. Mikið hefur verið rætt um aukinn vopnaburð lögreglu vegna skotárása síðustu daga og hefur innanríkisráðherra sagt að það komi til greina að lögreglumenn verði búnir rafbyssum.
Birgir hefur áhyggjur af vopnaburðinum:
„Síðustu ár hef ég orðið var við aukinn vopnaburð hjá unglings strákum og það hefur valdið mér ákveðnum áhyggjum. Í lang flestum tilfellum er um að ræða hnífa eða einhverskonar bitvopn,“ segir hann í færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. „g hef tekið vopn af mörgum þessum strákum og rætt við þá. Þetta eru oftast strákar sem hafa sýnt aðra áhættuhegðun og eru búnir að flækjast í hluti sem þeir kunna ekki að takast á við. Þeir detta þá inn í eitthvað umhverfi og norm þar sem eðlilegt er að bera vopn.“
Birgir segir að strákarnir segi að vopnið sé til að vernda sig en ekki til að ráðast á neinn. „Þegar við ræðum málin um það hvort þeir séu í alvöru tilbúnir að stinga einhvern þá kemur nær undantekningarlaust í ljós að þeir eru ekki búnir að hugsa það svo langt. Þeir vilja það að sjálfsögðu ekki og vilja alls ekki horfast í augu við afleiðingarnar sem því myndi fylgja. Þeir eru samt með vopnið í vasanum og á meðan svo er þá er hættan fyrir hendi að það verði tekið upp í hita leiksins með ófyrirséðum og óafturkræfanlegum afleiðingum.“
Birgir segir að það þurfi að nálgast strákana og aðstoða til að þeir sökkvi ekki dýpra.
„Og ef vopnin breytast þá telja þeir sig þurfa að vernda sig með samskonar vopnum. Þannig lenda þeir í hættulegri hringrás þar sem allir eru að vernda sig.“
Þess vegna sé nauðsynlegt að lögreglan sé vel mönnuð og hafi þjálfun til að bregðast við. „Það er líka algjörlega nauðsynlegt að setja fullan kraft í forvarnir og stöðva þessa þróun eins fljótt og við getum eins oft og við getum.“