Bene­dikt Erlings ó­sáttur við Lauf­eyju: „Auð­vitað er það ó­skap­lega mann­legt en samt ó­smekk­legt“

Leikarinn og leik­stjórinn Bene­dikt Er­lings­son segir að það sé ó­smekk­legt af hálfu Lauf­eyjar Guð­jóns­dóttur, for­stöðu­manni Kvik­mynda­sjóðs Ís­lands, að hún skreyti sig af kvik­mynd Bene­dikts, Hross í oss, eftir að hún neitaði að styðja verk­efnið að fullu á sínum tíma.

Lauf­ey, sem er að hætta sem for­stöðu­maður KMÍ var í við­tali hjá frétta­blaði Nor­dic Filmd and TV News þar sem hún var spurð hvaða ís­lensku kvik­mynda­verk­efnum hún man eftir með hlý­hug. Lauf­ey svaraði að hún hafi verið einkar stolt þegar Hross í oss vann til verð­launa á Nor­dic Council Film Prize árið 2014.

Bene­dikt leik­stýrði Hross í oss og var hann ó­sáttur við að Lauf­ey skildi tala um myndina í þessu sam­hengi, enda hafi hún, að sögn Bene­dikts, veðjað gegn myndinni á sínum tíma.

„Ég verð að nota þennan vett­vang til að halda því til haga að Lauf­ey Guð­jóns­dóttir veðjaði EKKI á Hross í oss á sínum tíma. Því hún veitti okkur ekki fullan fram­leiðslu­styrk. Við fengum svona “mini” styrk. Á­stæðan sem mér var gefin var að ég væri byrjandi. Gott og vel, en á sama ári veitti hún öðrum byrjanda ríf­legan fullan styrk, og svo öll næstu ár á eftir veitti hún byrj­endum fulla fram­leiðslu­styrki fyrir sínar fyrstu myndir og er það vel,“ skrifar Bene­dikt á Face­book.

Bene­dikt segir að þessi litli stuðningur við verk­efni hans hafi ekki verið honum sárs­auka­laus. Hann tók sjálfur lán, með veði á húsinu sínu og safnaði fjár­festum. Vinir, fjöl­skylda og velunnarar að­stoðuðu Bene­dikt við að gera myndina, sem átti eftir að slá í gegn og vann Bene­dikt til Norður­landa­verð­launa, fyrstur ís­lenskra kvik­mynda­gerðar­manna.

Bene­dikt segir að hann hafi einnig fengið litla sem enga að­stoð frá KMÍ þegar hann leik­stýrði Kona fer í stríð, sem vann einnig til fjölda verð­launa árið 2017.

„Og hef ég oft skálað við Lauf­eyju rjóða í kinnum á há­tíðum þar sem þessum ís­lensku myndum hefur verið hampað,“ skrifar Bene­dikt, en bætir við að auð­vitað hafi Lauf­ey haft fullan rétt á að velja og hafna hvaða verk­efni fengu styrki.

„Hins vegar finnst mér það ó­smekk­legt í ljósi þessa og annarra af­skipta hennar af mínum verkum að hún í lok ferilsins skreyti sig með “Hrossinu” sem hún studdi ekki að fullu. Auð­vitað er það ó­skap­lega mann­legt en samt ó­smekk­legt,“ skrifar Bene­dikt.

Nú þegar nýr for­stöðu­maður tekur við KMÍ vonast Bene­dikt eftir því að sá aðili fái ekki að sitja jafn lengi og Lauf­ey, sem hefur verið yfir KMÍ í tuttugu ár.

„Ég óska þess að nýr for­stöðu­maður inn­leiði meiri heiðar­leika og gegn­sæi og þori að standa með á­kvörðunum sínum,“ skrifar Bene­dikt, sem telur það bein­línis hættu­legt ís­lenskri kvik­mynda­gerð að heil kyn­slóð lista­manna eigi allt undir smekk eða vin­áttu einnar konu hálfa starfs­ævina.

Fleiri fréttir