Beinin sem Ágúst Ísfeld fann í Grindavíkurhrauni í gær reyndust ekki vera mannabein. Þetta staðfestir lögreglan á Facebook.
Líkt og Hringbraut greindi frá rak Ágúst augu í beinin í gær og brá honum nokkuð.
Lögreglunni barst í vikunni tilkynning um bein sem fundust í Skófellahrauni. Varð lögreglan meðal annars að nýtast við fjórhjól til að komast yfir hraunið að beinunum.
Í Facebook færslu lögreglunnar kemur fram að óskað hafi verið eftir aðstoð frá björgunarsveitinni Þorbirni.
Beinin voru fjarlægð af vettvangi og færð í hendur réttarmeinagfræðings sem staðfesti að ekki væri um að ræða mannabein.