Banna eigi nagladekk: „Engin furða að börnin þjáist af astma og ofnæmi“

Yvonne Höller, dósent við Háskólann á Akureyri, telur að banna eigi nagladekk og hafa strangari reglur um losun leyfða af bílum

Yvonne skrifar um svifryk á Akureyri í pistli sem birtist í gær á eyfirska fréttavefnum Vikudegi. Þar bendir hún á að svifryk í andrúmslofti á Akureyri fari reglulega yfir heilsuverndarmörk. Hún veltir fyrir sér hvort Akureyri sé að búa til kynslóð krabbameinssjúklinga en svifryk veldur breytingum á erfðaefni sem síðar getur framkallað lungnakrabbamein.

„Sólahringsstyrkur svifryks ætti ekki að fara yfir heilsuverndarmörkin oftar en 7 sinnum á ári. Og þar erum við Íslendingar í vanda því gögn sýna að slíkt gerðist t.d. í 39 skipti á Akureyri árið 2017,“ skrifar Yvonne.

Hvíla bílana

„En í hverju liggur lausnin? Felst hún ekki einmitt í því að samfélagið taki upp umhverfisvænni sam göngumáta, hvíli bílana sína og komi sér sem mest milli staða á umhverfisvænni hátt? Hér á Akureyri er frítt í strætó og stöðugt er unnið að endurbótum á hjóla- og göngustígakerfi bæjarins. Það ætti að vera sameiginlegt kappsmál okkar allra sem búum á Akureyri að vinna að því að minnka svifryksmengun í bænum okkar með því að draga úr óumhverfisvænum akstri. Þannig fáum við hreinna andrúmsloft fyrir börnin okkar og minnkum líkur á að þrói síðar á lífsleiðinni með sér bæði astma og ofnæmi…“

Yvonne segir að börn á leið í skólann þurfi oft að ganga framhjá bílum í lausagangi. Margir gamlir bílar losi mikið svifryk og hiti margir upp bíla sína með því að láta þá ganga í nokkrar mínútur áður en ekið er af stað.

„Engin furða að börnin þjáist af astma og ofnæmi,“ skrifar Yvonne.

Fleiri fréttir