Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor spyr í langri og ítarlegri grein á Facebook-síðu sinni hversu lengi við ætlum að sofa á verðinum þegar kemur að öryggis- og varnamálum hér á landi.
„Hulunni hefur verið svipt af æpandi andvararleysi íslenskra stjórnvalda þegar kemur að varnar- og öryggismálum á árinu sem er að líða. Nýjar tillögur um breytingar á þjóðaröryggisstefnu Íslands eru í engu samræmi við að ,,hernaðarlegt mikilvægi Íslands hefur aukist“ eins og fram kemur í nýrri skýrslu þjóðaröryggisráðs,“ segir hann í grein sinni þar sem hann telur upp fjórar ástæður sem geti verið fyrir skeytingarleysi íslenskra stjórnvalda.
Þá fer hann einnig yfir skýrslu forsætisráðherra um þjóðaröryggismál sem kom nýverið út og segir að sjö atriði mætti ígrunda í tengslum við þingsályktunartillögu forstætisráðherra um breytingar á þjóðaröryggisstefnunni.
„Ráðamenn um miðja síðustu öld gerðu sér vel grein fyrir vanmætti landsins á víðsjárverðum tímum og mikilvægi fælingarmáttarins. Í dag gerir enginn ráð fyrir allsherjar innrás í landið en það geta verið unnin skemmdarverk eða gerð afmörkuð árás af óþekktum óvinasveitum sérstaklega ef átökin milli Rússlands og vesturlanda ágerast. Ekki er ljóst hvort að bandalagsríki komi okkur til aðstoðar við þannig aðstæður eða sitji hjá og láti okkur sjá um að glíma við afleiðingarnar til að átökin stigmagnist ekki enn frekar. Því er einkar mikilvægt að stjórnvöld meti hvaða varnarviðbúnað er best að hafa hér á landi til að bregðast við slíku ástandi og láti ekki bandalagsríkjum okkar það einum eftir,“ segir hann að lokum í greininni sem hann birtir á Facebook og má lesa hér að neðan.