Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði segir að embætti ríkissaksóknara sé búið að rústa öllu trausti vegna framferðis Helga Magnús Gunnarssonar, vararíkissaksóknara. Fréttablaðið greindi frá.
Baldur segir þetta á Facebook í kjölfar þess að Helgi Magnús birti færslu þar sem hann sagði hælisleitendur „auðvitað“ ljúga um kynhneigð sína og spurði hvort „einhver skortur [væri] á hommum á Íslandi.“
„Sú spurning hlýtur að vakna hvort að stór meirihluti landsmanna, það er, konur, innflytjendur, þeir sem ekki eru hvítir á hörund, þeir sem eru hinsegin og þeir sem ekki eru sömu skoðunar og vararíkissaksóknari, fái ekki réttláta málsmeðferð hjá embættinu,“ segir Baldur.
Hann spyr hversu lengi það á að viðgangast að almenningur geti ekki treyst því að ein af mikilvægustu og valdamestu stofnunum samfélagsins veiti réttláta málsmeðferð.
„Er ekki komið nóg af skoðunum á ummælum og yfirlýsingum vararíkissaksóknara og að ráðamenn lýsi yfir áhyggjum af þeim án þess að nokkuð sé aðhafst?“ segir Baldur.
Baldur segir að það séu einmitt svona mál sem grafa undan tiltrú almennings á stofnunum samfélagsins og lýðræðinu.
„Og svo furða margir sig á þeirri reiði sem kraumar í samfélaginu hjá þeim sem telja að embætti ríkissaksóknara hafi brugðist í hverju kynferðisafbrotamálinu á fætur öðru og að metoo hreyfingin sem og margir aðrir vilji nota aðrar leiðir til að ná fram réttlæti,“ segir Baldur.
„Er ekki mál að linni?“
Hægt er að lesa nánar hér.