Foreldrar Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur, Arnar Þór Guttormsson og Karen Jenný Heiðarsdóttir, segja að þau hafi aldrei beðið Guðna að halda trúnað varðandi fyrstu tilkynningu þeirra til sambandsins um ofbeldi landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar gagnvart dóttir þeirra.
Í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér vilja þau leiðrétta ítrekaðar rangfærslur vegna meints trúnaðar á milli Guðna Bergssonar og þeirra og þá sérstaklega við föður Þórhildar Gyðu, Arnars Þórs.
Í yfirlýsingu segja þau að upprunalegur tölvupóstur sem þau sendu til að tilkynna um málið hafi verið sendur á netfangið [email protected], sem er almennt netfang sambandsins. Þeim tölvupósti svaraði Guðni Bergsson, þáverandi og fráfarandi formaður sambandsins, og segja þau að eftir að hann svaraði hafi þau aðeins verið í samskiptum við hann.
Þeim samskiptum lauk að þeirra sögn þann 22. mars 2018. Þau segja að þar hafi þau beðið Guðna að halda trúnaði við landsliðsmanninn sem um ræddi og aðra hvað varðar atvikalýsingu og aðrar upplýsingar sem þau deildu með honum í síma. Sjá má skjáskot af tölvupóstinum sem þau sendu honum hér að neðan.