Magnús Björn Ásgrímsson, formaður knattspyrnudeildar Leiknis, hefur beðið KSÍ afsökunar á því að hafa sett nafn sitt og Leiknis undir áskorun sem send var á stjórnina með kröfu um að hún myndi segja af sér. Magnús Björn segir það hafa verið mistök.
„Það var heimska. Og algjörlega ómaklegt. Þetta fólk hefur starfað af heilindum og ósérhlífni fyrir knattspyrnuhreyfinguna, flest í áratugi,“ segir hann í færslu sem hann deilir á Facebook-síðu sinni í gær.
Hann segir að í kjölfar þess að ofbeldismál komu upp innan sambandsins hafi allir átt að anda djúpt og vinna þessi mál betur og mæta svo til knattspyrnuþings í febrúar og skorar í bréfi á stjórnarmenn, sem hafa sagt af sér, að gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni.
Færsluna má sjá hér að neðan.