Auglýsa eftir starfsmanni til að borða girnilegustu réttina á Íslandi

Símafyrirtækið Nova leitar að starfsmanni til að smakka á öllum 2 fyrir 1 tilboðum fyrirtækisins.

Fyrirtækið auglýsir girnilegasta starf í heimi á atvinnuleitarvélinni Alfreð en í starfslýsingunni segir:

„Okkur vantar ofurhressa og banhungraða óuppgötvaða samfélagsmiðlastjörnu til að smakka á öllum 2f1 tilboðum Nova. Jebb, þú færð að borða að vild á öllum stöðum sem bjóða 2f1 — og að sjálfsögðu getur þú boðið einhverjum með þér.“

Hægt verður að fylgjast með matarævintýrum starfsmannsins á samfélagsmiðlum Nova þar sem leitað verður að besta 2f1 réttinum, flottustu matarupplifuninni, skemmtilegasta 2f1 staðnum eða ótrúlegasta eftirréttnum.
Nova hefur lengi státað sig því að vera stærsti skemmtistaður í heimi og er eitt af markmiðum þeirra að vera hreinlega besti vinnustaðurinn bæði á Íslandi og í heiminum öllum.

„ Ef þú telur þig hafa bragðlaukana, magann og rétta hugarfarið hvetjum við þig til að sækja um. Verði þér að góðu!“

Fleiri fréttir