„Auðveldara að kaupa sjúss en samloku“

Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur fjallar um áfengisneyslu á flugvöllum og í flugvélum í nýjasta pistli sínum í Fréttablaðinu.

„Flugsamgöngur bjóða ekki aðeins þyngdarlögmálinu birginn heldur einnig lögmálum um almennt háttalag. Sæist einhver heima hjá sér skola morgunkorninu niður með stórum Tuborg sætti það tíðindum. En á flugvelli þykir bjór klukkan sex að morgni ekkert tiltökumál,“ segir Sif í pistli sínum þar sem jafnframt kemur fram að skorpulifur sé vaxandi vandamál á Íslandi en helsta ástæða þess er aukin áfengisneysla þjóðarinnar.

Nýverið var svo greint frá því að Joe and the Juice ætlaði að hætta rekstri á flugstöðinni í Keflavík því nú væru nýjar reglur um að allir staðir þar þyrftu að vera með vínveitingaleyfi.

„Undirrituð slær sjaldan hendinni á móti glasi af köldu hvítvíni. En verða allir veitingastaðir á Keflavíkurflugvelli að vera drykkjubúllur? Þurfa þeir allir að bjóða upp á bjór, hvítt, rautt og tækifæri til að verða sér til skammar? Hvað með þarfir þeirra sem hugsa um heilsuna eða ferðast með börn? Eða okkar sem ferðumst þurr í janúar? Hvers vegna má Keflavíkurflugvöllur eins og aðrir flugvellir ekki fanga breidd mannlegra langana?“ spyr Sif og hvort að fríhöfnin sé einhvers konar „atferlilsfríhöfn“ þar sem fólk þarf ekki að hugsa um afleiðingar gjörða sinna.

„Sölustöðum Joe & The Juice sem nú starfa á Keflavíkurflugvelli verður lokað á næstunni. Senn verður auðveldara að kaupa þar sjúss en samloku,“ segir Sif svo að lokum en pistilinn má lesa á vef Fréttablaðsins í heild sinni.

Fleiri fréttir