Sautján smit kórónuveirunnar sem veldur COVID-19 greindust í gær innanlands. Af þeim sem greindust voru átta ekki í sóttkví. Þá greindust einnig sex á landamærunum en fimm bíða enn mótefnamælingar. Alls voru tekin alls 1.923 sýni innanlands og 224 á landamærunum.
Talsverður fjöldi smita hefur greinst í vikunni eftir að hópsýking kom upp á leikskólanum Jörfa í kjölfar þess að einstaklingur braut á sóttkví og einangrun.
Í nótt voru samþykkt á Alþingi ný lög sem heimila yfirvöldum að skylda ákveðna hópa á farsóttarhús auk þess sem bann er lagt við ónauðsynlegum ferðum erlendis.