Átök í mið­bænum: „Ég vona að ALLIR hætti að versla þarna“

Í Face­book hópnum Í­búar í Mið­borg hefur heit um­ræða átt sér stað vegna sendi­ferða­bíls sem var lagður á göngu­götu í dag. Mikill hiti hefur myndast síðustu ár á milli bifreiðaeigenda og þeirra sem vilja bíllausa borg.

Ragnar Ragnars­son setti inn færsluna þar sem hann hellir úr reiðiskálum sínum yfir búðina Epal og dísil­bílinn sem kom með vörurnar:

„Þetta flotta fyrir­tæki fékk sendar vörur með DÍSEL­BÍL í búðina sína við Lauga­veg 7. Inn á miðja göngu­götuna. Klukkan 17 og gatan full af gangandi fólki. Bíllinn merktur UPS. Ég vona að ALLIR hætti að versla þarna og svo þarf UPS að svara fyrir sig. Ég ætla ekki að versla við búðir sem nota UPS. VIÐ mið­bæjar­búar þurfum ekki að taka þessu þegjandi.“

Færslan hefur vakið at­hygli og hafa margir sagt sína skoðun á þessu.

Birna Ýr segir: Hvernig helduru að öll fyrir­tækin þarna fá vörurnar sínar af­hentar? Með drónum?

Alex Von Elía­son segir: Það sem fólk getur nöldrað

Orri Páll Vil­hjáms­son bendir á að það sé bannað að koma með vörur á Lauga­veginn eftir klukkan ellefu: Það er víst bannað eftir klukkan 11 að koma með vorur á Lauga­veginn en Mér er svo sem sama um ein­staka voru­fluttningar á lauga­veginum eftir klukkan 11. En það sem ég hef litla þoli­mæði fyrir er venju­legir bilar að keyra þarna niður enda er illa staðið að merkingum við gatna­mótin á frakka­stíg sér­stak­lega fyrir er­lenda ferða­menn

Viktoría Jóhanns­dóttir starfs­maður Epal segir að bíllinn sé ekki á þeirra vegum.

Sveinn Rúnar biður fólk um að reyna njóta sólarinnar og draga andann: Guð minn góður. Ég hef ekki hugsað mér að hætta að versla við fyrir­tæki vegna þess að þau fengu vörur sendar. Eigum við ekki að gera ráð fyrir að hér sé um að ræða ein­stakt til­vik að hálfu beggja fyrir­tækja. Tökum smá andann og reynum að gleðjast yfir sólinni

Fleiri fréttir