Stuðningsmenn Vals skoruðu ekki mörg stig hjá stuðningsmönnum Tindastóls í gær þegar liðin mættust í fyrsta leik í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfubolta í Origo-höllinni en stuðningsmenn Vals stilltu upp míkrafón hjá sér og svo hátalar hjá stuðningsmönnum Tindastóls til að yfirgnæfa hróp þeirra.
Á Twitter kemur fram að Valsarar hafi hótað að henda Auðuni Blöndal, leikara og útvarpsmanni, út úr höllinni en hann er harður stuðningsmaður Tindastóls og tók hátalarann úr sambandi í fyrri hálfleik.
Þeir settu mæk hjá stuðningsmönnum Vals og spiluðu það í hátölurum bakvið stuðningsmenn Tindastóls. Tók 1 þeirra úr sambandi í fyrri hálfleik og það átti að henda mér út ef ég gerði það aftur í seinni...
— Auðunn Blöndal (@Auddib) May 6, 2022
Hugi Halldórsson, sjónvarpsmaður, óskar Valsmönnum til hamingju með „sorglegasta move sögunnar“ og birtir mynd af hátalaranum umrædda. Hann skýtur svo á félagið og segir það fasteignafélag en eins og þekkt er seldu Valsmenn hluta lóðar sinnar og er nú verið að byggja þúsundir íbúða á Valsreitnum svokallaða.
Til hamingju Valur með sorglegasta move sögunar. Hljóðnemi á sínum stuningsmönnum og spila það í hátalarakerfinu 🤣🤣#þiðeruðfasteingafélag pic.twitter.com/6pxMDtNXZ0
— Hugi Halldórsson (@hugihall) May 6, 2022
Arnar Sveinn, mannauðsstjóri SaltPay og Valsari, kemur sínum mönnum til varnar á Twitter og segir að fólk sé „ofboðslega afbrýðisamt“ út í Val og það sé allt reynt til að hnekkja á þeim.
Fólk er alveg ofboðslega afbrýðisamt út í Val þessar vikurnar. Það er allt reynt. Skiptir ekki máli hvort það eru sófasérfræðingar eða lýsendur. Og ég gjörsamlega elska það. https://t.co/dxcrM7bfI5
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) May 6, 2022