Atli Fannar Bjarkason, fjölmiðlamaður, segir að stjórnmálin hafi brugðist fólki
Atli Fannar fjallar á samfélagsmiðli sínum um papparörin sem eru nú víða föst við drykki í stað plaströra sem áður voru. Hann segir að þessi rör, papparörin, séu dagleg áminning um að stjórnmálin hafi brugðist fólki.
„Einhver gagnslaus nefnd leggur til að fólk drekki búst í gegnum gamalt dagblað sem molnar niður og verður að pappamassa áður en drykkurinn klárast til að sporna við hamfarahlýnun í boði stórfyrirtækja (?),“ segir hann í færslu sem má sjá hér að neðan.
Papparörin eru dagleg áminning um hvernig stjórnmálin hafa brugðist fólki. Einhver gagnslaus nefnd leggur til að fólk drekki búst í gegnum gamalt dagblað sem molnar niður og verður að pappamassa áður en drykkurinn klárast til að sporna við hamfarahlýnun í boði stórfyrirtækja (?)
— Atli Fannar (@atlifannar) August 4, 2021