Ásökunum um mútugreiðslur verður hrundið

Björgólfur Jóhannsson, sem lét af tímabundnum störfum sem forstjóri Samherja hf, kveðst sannfærður um að ásökunum á hendur stjórnendum fyrirtækisins um mútugreiðslur til stjórnvalda í Namibíu verði hrundið. Málið sé úr lausu lofti gripið að hans mati. Engin ástæða sé til að ætla annað en að afdrif þeirra verði þær sömu og áburðurinn um peningaþvætti að hálfu fyrirtækisins í viðskiptum með fisk frá sunnanverðri Afríku, en þeim málarekstri hefur verið hætt.

Þetta kemur fram í viðtalsþættinum Mannamáli á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þar ræðir Sigmundur Ernir við Björgólf um þær alvarlegu ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur forkólfum Samherja hf vegna viðskipta félagsins í Namibíu, en Björgólfur, sem þekkir vel til starfsemi Samherja fyrr og síðar, fer vel yfir allan málatilbúnaðinn í þættinum í kvöld, eins og eftirfarandi brot úr þættinum ber með sér.

Fleiri fréttir