Ásmundur ekki sáttur við að Bubbi fái undanþágu

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr á Facebook hvers vegna Bubbi fái undanþágu til að halda Þorláksmessutónleikana sína á fimmtudagskvöldið og segir hann með þessu fallinn beint á andlitið „inn í hóp spillingar- sérhagsmunaelitunnar sem hann er alltaf að drulla yfir.“

Hann segist ekki vita hver það er sem veitir slíka undanþágu en kallar eftir því að það gangi það sama yfir alla. Greint var frá því í kvöld á vef Fréttablaðsins að tónleikar Bubba yrðu haldnir í Hörpu og í streymi eftir að hann fékk undanþágu.

„Það verður eitt að ganga yfir okkur öll sem höfum þurft að taka á okkur skerðingar á frelsi okkar og aðgang að menningu og mannamótum,“ segir Ásmundur.

Í athugasemdum við færslu sem hann birti um þetta segir einn, Smári Kolbeinsson, að fordæmi þekkist fyrir þessu því bæði Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið hafi í fyrri bylgjum fengið undanþágu vegna stutts fyrirvara en telur að allir sem sæki um undanþágu vegna viðburða sem á að halda á Þorláksmessu fái þá sömu undanþágu.

Fleiri fréttir