Áslaug Arna í vanda: „Sá strax að taskan kom aldrei með“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands er komin heim eftir ferð til Tenerife, en farangurinn hennar varð allur eftir úti.

„Gengið að kaupa brýnar nauðsynjar: tannbursta, hárbursta og krem. Þar sem ferðataskan kom ekki með heim,“ skrifar Áslaug á Instagram.

Á næstu mynd má sjá hvar farangurinn hennar er, en hann virðist vera ennþá á flugvellinum á Tenerife.

„Sá strax að taskan kom aldrei með og varð eftir á flugvellinum úti. Mæli með að hafa airtag á ferðatöskum.“

Mynd/Instagram
Mynd/Instagram

Fleiri fréttir