Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fékk þann heiður að verða fyrst til þess að kaupa bjór beint frá brugghúsinu Smiðjunni í Vík í Mýrdal.
Smiðjan var fyrsta brugghús landsins sem hafði fengið leyfi til þess að selja bjór beint á framleiðslustað, en núna er kippan af „Er of snemmt að fá sér?“ sem Áslaug Arna keypti sú fyrsta í Íslandssögunni sem er seld beint frá framleiðslustað. Áslaugu var boðið á viðburðinn þar sem hún var fyrsti ráðherrann til þess að leggja fram frumvarp um breytingu á smásölu áfengis.
Þórey Richardt Úlfarsdóttir er stjórnarformaður og rekstraraðili Smiðjunnar sagði í samtali við Vísi að hún væri hæstánægð með leyfið.
„Við erum bara hrikalega ánægð með þetta. Ég held þetta sé bara í fyrsta sinn í 110 ár sem það er leyfilegt að ríkið komi ekkert að þessu.“
„Hún hefur stutt mikið við okkur og verið jákvæð í garð okkar,“ sagði Sveinn Sigurðsson, einn stofnenda Smiðjunnar í samtali við mbl.
Áslaug Arna var glöð með að frumvarpið sem hún lagði fram árið 2020 væri nú orðið að lögum.
„Fyrsti áfengi drykkurinn seldur beint yfir borðið frá einkaaðila til einkaaðila síðan 1912. Sumir segja að þetta sé lítið skref en það er mikilvægt brotthvarf frá algjörri kyrrstöðu. Smiðjan í Vík í Mýrdal var fyrst til þess að byrja sölu í dag en þau hafa skapað tuttugu störf og glætt líf bæjarins. Frumvarpið sem ég lagði fyrst fram í upphafi árs 2020 er nú orðið að lögum og komið til framkvæmda.“