„Þótt það sé þungskýjað til skamms tíma þá er margt bjart í kortunum,“ segir Árni Helgason, lögfræðingur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þar hvetur Árni Íslendinga til að líta á björtu hliðarnar þó útlitið hafi oft verið bjartara en akkúrat núna.
„Maður þarf ekki að vera mjög næmur á stemninguna í samfélaginu til að finna að það er þungt yfir núna. Fram undan er erfiður vetur þar sem margir munu ekki geta veitt sér það sem þeir eru vanir, möguleikar okkar til að ferðast eru takmarkaðir, það er atvinnuleysi og það eru erfiðleikar víða,“ segir Árni í pistlinum.
Hann segir að þegar horft er á stóru myndina sé líka tilefni til bjartsýni og nefnir hann fimm atriði máli sínu til stuðnings:
- Ríkissjóður stendur vel og getur hlaupið undir bagga á erfiðum tímum.
- Í öllum samanburði höfum við sloppið vel í gegnum þennan faraldur, hvort sem horft er til fjölda tilfella, innlagna eða dauðsfalla. Þegar sagan verður skrifuð síðar meir verður það stærsta málið.
- Önnur bylgja veirunnar er mun vægari en sú fyrsta. Í gær var til dæmis enginn á spítala vegna veirunnar. Það ætti því að vera tilefni til að rýmka reglur á landamærum mjög fljótlega, sem gæti létt undir með fyrirtækjum og ferðaþjónustu.
- Yfirlæknir á Landspítalanum segir að þróun bóluefnis líti vel út og það gæti verið tilbúið um áramótin. Ég þekki nokkra lækna og þegar þeir segja að eitthvað líti vel út, þá er það ekki eins og þegar Einar, frændi kunningja manns, hringir og segist vera með viðskiptatækifæri sem líti vel út. Það er virkilega til marks um að útlitið sé gott.
- Þegar landamæri opnast að fullu á ný bendir allt til þess að Ísland, með sinni náttúrufegurð og kyrrð, verði jafnvel enn eftirsóknarverðari áfangastaður en fyrr enda hafa margir verið innilokaðir mánuðum saman.