Arnar Tómas Valgeirsson, lýsir því í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag, og alveg án þess að skammast sín, hvernig hann hafði heil tvö páskaegg af börnum í Páskabingói í Vinabæ fyrir nokkrum árum.
Hann segist hafa unnið fyrir fyrirtæki fyrir nokkrum árum sem stóð fyrir fjölskyldubingói í Vinabæ um páskana.
„Sípiprandi og barnlausum var mér ekki boðið í herlegheitin þótt það hefði auðvitað ekki verið illa séð ef ég hefði mætt einsamall. Bara pínu sorglegt. Þegar í ljós kom að það vantaði öll skrifföng var ég kallaður út til að redda málunum og fékk að launum nokkur bingóspjöld þegar ég mætti pennum klyfjaður í Skipholtið. Ég var að rifna úr spennu yfir að fá að taka þátt en þorði þó ekki að sýna það verandi sirka tveimur áratugum yfir meðalaldri keppenda,“ segir Arnar.
Hann hafi verið fljótur að fylla spjald og í kjölfarið þotið upp á svið að sækja verðlaunin, tvö páskaegg og Bluetooth-hátalara.
„Brúna gullið var þó ekki svo auðunnið. Tvö kornung börn höfðu líka fengið bingó og álpuðust upp á svið í fylgd foreldra svo hægt væri að útkljá hvert okkar væri Hálendingurinn í Vinabæ. Það gat jú aðeins verið einn,“ segir Arnar og lýsir svo ísköldu augnaráði sem samstarfskona hans gaf honum sem lýsti augljósri vanþóknun á þeirri ákvörðun hans að stíga ekki til hliðar svo að börnin gætu fengið aðalvinninginn.Hlutkesti hafi verið varpað eins og bingóreglur gera ráð fyrir og auðvitað vann okkar maður.
„Börnin þurftu að sætta sig við annað og þriðja sæti á meðan ég baðaði mig í sigrinum. Ég skóf ekkert af fagnaðarlátunum og tók nokkur dansspor fyrir viðstadda. Ég var fljótur að klára eggin en hátalarann nota ég enn í stað alvöru græja í bílnum mínum. Ég get fullyrt að ég hafi fengið mun meira út úr vinningnum en börnin hefðu nokkurn tímann,“ lýsir Arnar og segist ekki sjá eftir neinu. „Börn mega alveg tapa stundum.“